Auður og Halla skoða heiminn

föstudagur, september 01, 2006

Ekki á morgun heldur hinn...

Nú getur fólkið glaðst því bestasta Ýrr útbjó þessa fínu síður fyrir okkur skvísurnar Auði og Höllu.
Við skvísurnar leggjum af stað til Tokyo á sunnudaginn og ég hlakka mikið til:-) Ég er samt alveg ótrúlega róleg yfir þessu öllu og spenningurinn ekki ennþá kominn í magann ... sé til hvernig gengur að sofna á laugardagkvöldið.
Það er langt ferðalag framundan en hagstæðast var fyrir okkur að fljúga þessa leið: Keflavík - London (skipta um flugvöll í London), London - Kaupmannahöfn (vera í Köben í 7 tíma og nota tímann til að redda JR lestarmiðum fyrir Japan og heimsækja Margréti, Einar og litla prinsinn), Kaupmannahöfn - Tokyo. Lendum í Tokyo á þriðjudagsmorgun (9:35 á staðartíma) finnum hótelið okkar og skoðum næsta nágreni. Segjum betur frá því síðar:-)

Mér finnst alltaf svo ljúft að vera að fara til útlanda því ég er aldrei eins vinsæl og rétt fyrir brottför og er því búin að vera mikið á kaffihúsum og í heimsóknum hjá vinum og vandamönnum til að knúsa bless.
Þar sem ég er alltaf svo "heppin" tókst mér að brjóta upp úr framtönn í vikunni sem mér fannst alveg agalegt, en fékk tíma hjá tannsa strax daginn eftir og er eins og ný. Mér finnst ég mjög heppin að þetta gerðist í vikunni en ekki nú um helgina því ég hefði ekki verið neitt sérstaklega ánægð með það að spóka mig með brotna tönn í útlandinu. Mér fannst nógu erfitt að vera svona þennan sólarhring hér heima.

Ég vona að þið njótið þess að fylgjast með okkur vinkonunum í útlandinu og ekki vera feiminn við að kommenta ef þið hafið eitthvað að segja.

Til ykkar sem ekki fenguð knús bless, lofa ég "hæ aftur" knúsi.

Knús og kossar Auður.

7 Comments:

  • At 01 september, 2006 13:59, Blogger Ýrr said…

    Afhverju þarf JR lestarmiða í Tokyo? Getur hann ekki bara tekið einkaþotuna...?

    Það verður gaman að fylgjast með ykkur! :D

     
  • At 01 september, 2006 16:02, Anonymous Sigga said…

    Habbarasona, þetta líka fína blogg!

    Koss áður en þið farið af landi brott, já takk!!!!

    Ef hann næst ekki segi ég bara ÓTRÚLEGA GÓÐA FERÐ :)

    Hlakka til að fylgjast með ykkur!!!

     
  • At 02 september, 2006 02:41, Blogger Tinna said…

    Jæja búin að kommentera nokkurum sinnum voða krúttó.

    En góða ferð og takið JR bara með ykkur, ekki leiðinlegt að hafa hönk með sér í lestunum ;)

     
  • At 02 september, 2006 05:56, Blogger �engill said…

    Gangi ykkur vel elskurnar mínar. Ég á eftir að fylgjast spenntur með.

    Hlakka til að fá "hæ aftur" knúsið, þar sem ég fékk ekki bless knús muhuhuhuhu!!! snökt!! ;)

    Ykkar verður sárt saknað.

     
  • At 02 september, 2006 10:59, Blogger Slavo said…

    Jamm...
    Thid skuldid mer knus...!
    En eigidi annars bara obbosens goda ferd og vid sjaumst thegar vid sjaumst... :D
    Kikid endilega a mig ef leidir ykkar liggja um Noreg.. ;)

    Hilsen,
    Den Norske Slavo

     
  • At 02 september, 2006 17:07, Anonymous Audur "Litla" Geirs said…

    frabaer sida tad er ekki slaemt ad eiga tolvunarfraeding sem vinkonu... en allaveganna bid ad heilsa japonunum og saetu astrolunum ekki fara ykkur ad voda og komid heilar heim.....

    kv fra Audi fra NYC :)

     
  • At 02 september, 2006 17:19, Blogger sArs said…

    gÓða ferð til úgglanda!
    ég er í ekki nema 6 klst. flugferð frá Tokyo hérna í Vancouver, kAnada. Hvað staldriði lengi við þar?

    munið að tala ekki við ókunnuga.
    - heillaráð frá ferðasÖru

     

Sendu inn athugasemd

<< Home